Erlent

Höfrungar þekkja sig í spegli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hvalveiðum Íslendinga var mótmælt á ráðstefnu í Helsinki um helgina. Mynd/ AFP.
Hvalveiðum Íslendinga var mótmælt á ráðstefnu í Helsinki um helgina. Mynd/ AFP.
Hvalir og höfrungar ættu að njóta „mannréttinda" til lífs og frelsis vegna þess að allar vísbendingar benda til þess að þeir séu mjög greindir, segir hópur náttúruverndasinna og sérfræðingar í siðfræði, lögum og siðfræði. Samkvæmt rökum þeirra er óverjandi að veiða hvali til matar eða geyma þá í sædýrasöfnum.

Fréttastofa Reuters segir að Japanir, Norðmenn og Íslendingar, helstu hvalveiðiþjóðirnar, mótmæli slíkum rökum. Þeir telji engin rök vera fyrir því að hvalir séu greindari en önnur dýr, til dæmis kýr eða svín.

Þátttakendur í ráðstefnu sem haldin var í Háskólanum í Helsinki um helgina telja að stór sjávarspendýr hafi sjálfsvitund á við menn, auk samskiptahæfni og hæfileika til að skipuleggja flókin samfélög. Hvalir séu því eins og margar apategundir.

Thomas White, forstjóri Siðfræði- og viðskiptastofnunarinnar við Loyola Marymount háskólann í Kaliforníu var staddur á ráðstefnunni í Helsinki. Hann sagði að höfrungar gætu þekkt sjálfa sig í spegli, en það væri hæfileiki sem afar fá spendýr hafi. Mannsbörn næðu þessari færni ekki fyrr en um 18 mánaða aldur.

„Hvalveiðar eru siðferðilega óásættanlegar," segir White við Reuters. „Þeir hafa sjálf sem við töldum áður að einungis maðurinn hefði," sagði White.

Hal Whitehead, líffræðiprófessor við Dalhousie háskólann í Kanada, sagði að vísbendingar væru um að hvalir byggju í samfélagi sem minntu á samfélag manna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×