Reyna að svíkja fórnarlömb Bernie Madoffs 10. mars 2010 07:55 Bernie Maddof. Mynd/AFP
Það á ekki af fórnarlömbum fjárglæframannsins alræmda Bernie Madoff að ganga. Vefsíða lofar þeim endurgreiðslu hluta fjárins sem Madoff sveik af þeim en tilgangur síðunnar er hins vegar ekki göfugur. Madoff var fundinn sekur í júní á síðasta ára um að hafa svikið 65 milljarða dollara, jafnvirði tæplega átta þúsund milljarða íslenskra króna, af þúsundum viðskiptavina sinna yfir margra ára tímabil. Madoff afplánar nú 150 ára fangelsisdóm fyrir svikin. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa varað fórnarlömb Madoffs við vefsíðunni en þar kemur fram að andvirði tæplega 170 milljarða króna hafi fundist á leynilegum reikningi hans í Malasíu. Félagið sem stendur á bak við síðuna er meðal annars sagt tengjast Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Sameinuðu þjóðunum. Vefsíðunni er beint að einstaklingum sem Madoff tókst að hlunnfara og þeir beðnir um að senda inn margvíslegar persónu- og bankaupplýsingar til að fá hluta af fénu sem þeir töpuðu til baka. Bandarísk yfirvöld vita ekki hverjir standa á bak við síðuna en vara fórnarlömb Madoffs eindregið við að gefa upp umræddar upplýsingar þar sem enginn leynireikningur hafi fundist í Malasíu. Ljóst sé að forsvarsmenn vefsíðunnar séu að reyna að hafa af þeim fé.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira