Spenna eykst á ný vegna Falklandseyja Óli Tynes skrifar 17. febrúar 2010 07:58 Frá Falklandseyjastríðinu 1982.
Argentinsk stjórnvöld tilkynntu í gær að öll skip sem sigldu frá Argentínu til Falklandseyja þyrftu sérstakt leyfi yfirvalda til ferðarinnar. Ástæðan er sögð sú að skip sem lá í argentinskri höfn í síðustu viku var sagt eiga að flytja leiðslur til Falklandseyja þar sem bresk fyrirtæki eru að leita að olíu. Argentínumenn gera ekki aðeins tilkall til eyjanna heldur einnig til allra verðmæta sem kunna að finnast á hafsbotni í kringum þær. Bretar hafa ráðið Falklandseyjum síðan 1833. Argentínumenn kalla eyjarnar Las Malvinas og hafa frá upphafi gert tilkall til þeirra. Bretland og Argentína háðu stutt en mannskætt stríð um eyjarnar árið 1982 eftir að Argentínumenn lögðu þær undir sig með hervaldi. Ástæða innrásarinnar þá var sú að herforingjastjórnin í Argentínu átti mjög undir högg að sækja heimafyrir. Hershöfðingjarnir hugðust leysa þann vanda með því að sameina þjóðina í stríði. Það tókst ágætlega því Argentínumenn fylltust þjóðarstolti og gleymdu öllum vandræðum heimafyrir. En svo sendu Bretar flotadeild sem hrakti innrásarliðið frá eyjunum. Herforingjastjórnin féll skömmu síðar.
Mest lesið Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent Telja dagana frá síðasta innbroti Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Von á mesta vindinum í marga mánuði Veður „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Innlent Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Erlent Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Innlent „Þau eru að herja á börnin okkar“ Innlent Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Innlent Fleiri fréttir Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru Ekki hægt að staðfesta drónaflug við Álaborgarflugvöll Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Segist ekki munu leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Keppast við að ákæra Comey Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Flugvellinum í Álaborg lokað vegna drónaflugs Segja árásina hafa beinst gegn ICE Pútín auki einfaldlega stríðsreksturinn verði hann ekki stöðvaður Sprenging í Osló talin tengjast sænsku glæpagengi Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Biðjast afsökunar á „svörtum kafla“ í sögu Danmerkur og Grænlands Kenna Trump-liðum um bæði rúllustigann og textavélina Ekki staðfest hvort það hafi verið drónar sem röskuðu flugumferð í Osló Ekki pappírstígur heldur alvöru björn Vinsælum þáttarstjórnanda sagt upp vegna ásakana um brot gegn unglingsstúlku Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Sjá meira