Kuldinn í Evrópu hækkar bensínverð 14. janúar 2010 06:00 Lítrinn af 95 oktana bensíni með þjónustu hefur aldrei verið dýrari hérlendis. Fréttablaðið/gva
Lítraverð á 95 oktana bensíni fór yfir 200 krónur með fullri þjónustu á stærri bensínstöðvum í fyrrakvöld þegar olíufélög hækkuðu verðið almennt um þrjár krónur. Hefur verðið aldrei áður verið eins hátt hérlendis. Magnús Ásgeirsson, yfirmaður eldsneytisinnkaupa hjá N1, segir að rekja megi verðhækkunina rakleiðis til kuldakastsins í Evrópu upp á síðkastið. „Allar spár síðasta hluta síðasta árs voru á þá leið að olíuverð yrði frekar flatt og stöðugt eitthvað fram eftir árinu. Það sem hins vegar setti strik í reikninginn, og leiddi til þessarar hækkunar, voru kuldarnir úti í Evrópu,“ segir Magnús. „Þá fer hráefnið bara nánast allt í að framleiða olíu sem er notuð til húshitunar vegna kuldans og verðið hækkar vegna þess.“ Og Magnús á frekar von á því að verðið lækki aftur þegar veðrinu slotar. „Það myndi þá gerast mjög hratt að því gefnu að krónan sé skikkanleg eins og hún hefur verið undanfarið.“ Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem lítraverð á eldsneyti fer yfir 200 krónur á Íslandi. Í októberbyrjun haustið 2008 fór lítraverð á dísilolíu í 204,6 krónur í tæpa viku vegna óróleikans á fjármálamörkuðum. Það lækkaði síðan aftur í kjölfar setningar neyðarlaganna 6. október. - sh
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira