Erlent

Sænskur maður eftirlýstur

Skiltið fannst tveimur dögum eftir stuldinn.
fréttablaðið/AP
Skiltið fannst tveimur dögum eftir stuldinn. fréttablaðið/AP
Lögreglan í Póllandi hefur lýst eftir sænskum manni, Andreas Högström, sem sagður er vera höfuðpaurinn í ráni á skiltinu alræmda sem stóð yfir hliði útrýmingarbúðanna í Auschwitz í Póllandi.

Lögreglan fer fram á að hann verði handtekinn og framseldur til Póllands.

Fimm Pólverjar eru í haldi lögreglu vegna þjófnaðarins. Skiltinu, sem á stendur „Arbeit macht frei“, var stolið 18. desember síðastliðinn, en fannst tveimur dögum síðar í bifreið nálægt heimili eins Pólverjanna.

- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×