Íslendingarnir komu til Haítí í gærkvöldi Óli Kristján Ármannsson skrifar 14. janúar 2010 06:00 Björgunarsveitarliðar Ferðbúast Hér sést rústabjörgunarsveit Landsbjargar búast til farar til Haítí eldsnemma í gærmorgun. Sveitin hélt af stað um klukkan ellefu, en kvöldið áður riðu öflugir jarðskjálftar fyrir í nágrenni Port-au-Prince. Fréttablaðið/Valli
Íslenska rústabjörgunarsveitin kom til hjálparstarfa á Haítí um klukkan níu í gærkvöld að íslenskum tíma eftir tíu tíma ferðalag frá Íslandi. Millilent var í Boston í Bandaríkjunum til eldsneytistöku. Íslenska sveitin var með fyrstu alþjóðlegu hjálparsveitum sem komu til Haítí, tæpum sólarhring eftir jarðskjálftana í nágrenni höfuðborgarinnar Port-au-Prince. Sveitin hefur meðferðis um þrjú tonn af vatni, tjaldbúðir fyrir sveitina, fullkominn fjarskiptabúnað og vatnshreinsibúnað. „Hægt er að halda sveitinni úti án utanaðkomandi aðstoðar í allt að sjö daga,“ segir í tilkynningu Landsbjargar. Samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins síðdegis í gær var þá óljóst hvort flugvöllurinn í Port-au-Prince yrði opinn þegar Íslendingarnar kæmu. Ef völlurinn hefði lokaðist var gert ráð fyrir að lenda í Dóminíska lýðveldinu sem er í um 400 til 500 kílómetra fjarlægð frá skjálftasvæðinu. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í fyrrinótt ákvörðun um að senda sveitina af stað og heimsótti hana í björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð þar sem ferðin var undirbúin. „Utanríkisþjónustan hefur verið í sambandi við stjórnvöld Haítís sem hafa þakkað fyrir stuðninginn og skjót viðbrögð frá Íslandi. Eins hefur ráðuneytið verið í sambandi við fólk sem þekkir til staðhátta á Haítí. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins kannar nú hvort Íslendingar séu á svæðinu og reynir að ná sambandi við þá,“ sagði í tilkynningu ráðuneytisins. Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, fór með utan með rústabjörgunarsveitinni. Hann sagði ráð fyrir því gert að eftir lendingu gengi sveitin frá búnaði sínum og undirbyggi aðgerðir. Björgunarstörf yrðu hafin strax morguninn eftir. Í íslensku björgunarsveitinni eru 35 menn. Með í för út eru einnig fulltrúar utanríkisráðuneytisins. Flogið var út í þotu Icelandair sem var til reiðu á Keflavíkurflugvelli.
Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Erlent Fleiri fréttir Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Sjá meira