Baldur krefst þess að kyrrsetning eigna hans verði ógild 12. janúar 2010 10:45
Kyrrsetning á eignum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, er fordæmalaus, tilefnislaus, óvenjuleg og óvægin. Þetta segir lögmaður hans sem krafðist þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að kyrrsetningin yrði ógild. Þann 13. nóvember síðastliðinn kyrrsetti Sýslumaðurinn í Reykjavík, að beiðni embættis sérstaks saksóknara, innstæður á tveimur bankareikningum Baldurs Guðlaugssonar í Nýja Kaupþingi. Á reikningunum eru 193 milljónir króna. Hagnaðurinn af sölu Baldurs á hlutabréfum í gamla Landsbankanum sem Baldur seldi þan 17. og 18 september árið 2008, korteri fyrir hrun. Baldur liggur undir grun um að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar við söluna en hann var þá ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Lögmaður Baldurs, Arnar Þór Stefánsson, sagði meðal annars í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að kyrrsetningin væri fordæmalaus og óvægin. Hann benti á að mál Baldurs uppfyllti engin af þeim þremur skilyrðum sem séu fyrir kyrrsetningu en þau eru ef hætta er á að eignum sé komið undan, þær glatist eða þær rýrni. Arnar benti á að Baldur hafi ekki og ætli ekki að hreyfa við söluhagnaði peningabréfanna á meðan rannsókn málsins stendur og hann eigi ekki bankareikninga erlendis. Björn Þorvaldsson, fulltrúi sérstaks saksóknara, krefst frávísunar og benti á að það hafi verið sýslumaður sem hafi kyrrsett eignir Baldurs. Kyrrsetningin sé vægasta aðgerð sem hægt sé að grípa til enda liggi peningarnir á bankabók Baldurs á fullum vöxtum. Þá benti Björn einnig á að eignir hafi verið kyrrsettar í sambærilegum málum án athugasemda og vísaði meðal annars til fjársvikamálsins í Tryggingastofnum ríkisisns. Baldur Guðlaugsson hefur ekki aðeins krafist að kyrrsetning eigna hans verði ógild, því hann hefur líka krafist þess að rannsókn sérstaks saksóknara á meintum innherjaviðskiptum hans verði felld niður. Sú krafa er komin til Hæstaréttar. En niðurstaða í báðum þessum málum mun liggja fyrir innan fárra vikna.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira