Ekki þrælar heldur launafólk 12. janúar 2010 04:00 Þessir menn aðstoða nú fornleifafræðinga sem hafa fundið nýjar upplysingar um smíði píramídanna. nordicphtos/AFP
Nýfundnar grafir í Egyptalandi, meira en fjögur þúsund ára gamlar, þykja sýna fram á að píramídarnir hafi ekki verið byggðir af þrælum heldur launafólki. Grafirnar voru sýndar almenningi í fyrsta sinn í gær, en þær fundust í síðustu viku á bak við píramídana í Gísa. Nýfundnu grafirnar eru inn af grafhýsi sem fannst fyrir tæpum tuttugu árum. Grafirnar eru frá árunum 2757 til 2467 fyrir Krist, en á þeim tíma voru píramídarnir reistir í útjaðri borgarinnar Kaíró. Zahi Hawass, yfirmaður fornleifamála í Egyptalandi, segir greinilegt að þeir sem þarna liggja grafnir hafi verið launamenn, ekki þrælar. Allt frá því forngríski sagnfræðingurinn Herodótos sagði píramídana smíðaða af þrælum hefur sú saga víðast hvar verið viðtekin, þótt Egyptar hafi stundum reynt að malda í móinn. Hawass segir augljóst að þeir sem liggja í gröfunum hafi ekki komið úr röðum þrælanna, sem víða voru notaðir í Egyptalandi á tímum faraóanna. Þeir hafi komið frá fátækum fjölskyldum í norðanverðu og sunnanverðu Egyptalandi og notið ómældrar virðingar fyrir störf sín. Greftrun þeirra við píramídana staðfesti það, sem og hvernig lík þeirra voru búin undir líf eftir dauðann. „Ef þeir væru þrælar hefðu þeir alls ekki fengið svona virðulega greftrun,“ segir Hawass. - gb
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira