Íslenski boltinn

Reynir Leósson lánaður til ÍA næsta sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Reynir Leósson.
Reynir Leósson. Mynd/Vilhelm

Reynir Leósson mun spila með ÍA í 1. deild karla næsta sumar en þessi 31 árs miðvörður er því aftur á leiðinni á æskustöðvar sínar á Skaganum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Reynir á eitt ár eftir af samingi sínum hjá Val en Hliðarendafélagið lánar hann til Skagamanna sem enduðu í 5. sæti í 1. deildinni síðasta sumar.

Reynir lék síðast með Skagamönnum sumarið 2005 en hann á að baki 132 leiki með liðinu í úrvalsdeild karla.

Reynir fór til sænska liðsins Trelleborg árið 2006 en kom síðan aftur heim og gekk til liðs við Fram. Hann hefur síðan spilað með Valmönnum undanfarin tvö tímabil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×