Uppbyggingarstarf næstu ára skipulagt 10. febrúar 2010 06:00 Íslendingarnir þrír, Sigríður Þormar, David Lynch og Hrafnhildur Sverrisdóttir héldu af stað til Haítí í gær.fréttablaðið/Pjetur
Þau Sigríður Þormar, Hrafnhildur Sverrisdóttir og David Lynch ganga til liðs við 24 manna alþjóðlegan hóp sérfræðinga á vegum Rauða krossins sem skipuleggur uppbyggingarstarf hreyfingarinnar á Haítí næstu þrjú árin. Sérfræðingahópurinn mun kortleggja getu annarra hjálparsamtaka, stjórnvalda og Rauða krossins á Haítí, og hvar sérfræðiþekking og mannauður Rauða kross-hreyfingarinnar nýtist best í uppbyggingunni. „Við höfum öll unnið við stærri verkefni á vegum Rauða krossins, en þetta er af svolítið öðrum toga,“ sagði Sigríður þegar Fréttablaðið náði tali af henni í gær. „Það er vitaskuld ábyrgðarhlutverk að taka þetta að sér. Það er helst það sem situr í manni.“ Gríðarlegt uppbyggingarstarf bíður alþjóðlegra hjálparsamtaka og heimamanna á Haítí eftir jarðskjálftann mikla sem reið yfir 12. janúar. David Lynch segir Íslendinga hins vegar standa mjög framarlega hvað varðar hjálpar- og uppbyggingarstarf í kjölfar jarðskjálfta. „Við höfum tekið þátt í slíku svo víða að það hefur safnast saman mikilvæg þekking og reynsla.“ Sigríður Þormar er hjúkrunarfræðingur og sálfræðingur með áratugareynslu af áfallahjálp og sálrænum stuðningi í kjölfar hamfara. Hún hefur starfað fyrir Rauða kross Íslands og Alþjóða Rauða krossinn víða um heim, og þjálfað sjálfboðaliða á vegum fjölda landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans í sálrænum stuðningi. Hrafnhildur Sverrisdóttir er sérfræðingur í mannréttindum og þróunarfræðum. Hún var sendifulltrúi Rauða kross Íslands á Fílabeinsströndinni og í Búrúndí, starfaði með íslensku friðargæslunni í Afganistan, og með Sameinuðu þjóðunum í Makedóníu og Kósóvó. David Lynch hefur starfað á alþjóðasviði Rauða kross Íslands sem verkefnisstjóri í neyðarvörnum og neyðarviðbrögðum í kjölfar hamfara, og á neyðarvarnaskrifstofu Alþjóða Rauða krossins í Genf. Hann var sendifulltrúi Rauða kross Íslands um árabil í Asíu, Miðausturlöndum, Tsjetsjeníu og Kákasuslöndunum. Á Haítí eru fyrir þrír Íslendingar á vegum Rauða krossins og einn Íslendingur enn kemur þangað til starfa um næstu helgi. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Komið að ögurstundu Erlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira