Rafbyssa bjargaði allsberu vöðvatrölli Óli Tynes skrifar 10. febrúar 2010 10:38 Zzzzapppp
Hvorki lögreglukylfur piparúði né lögregluhundur dugðu til þess að yfirbuga allsbert sex feta vöðvatröll sem gekk berserksgang í bænum Viktoríu í Kanada um síðustu helgi. Lögreglan var kölluð út þegar maður á tvítugsaldri hóf að öskra á konu sem var að reyna að leggja bíl sínum í stæði við heimili sitt. Þegar fyrsti lögregluþjónninn kom á vettvang hitti hann fyrir nakinn mann sem var yfir sex fet á hæð, um eitthundrað kíló að þyngd og einstaklega stæltur. Hann var líka einstaklega æstur. Lögregluþjónninn greip til kylfu sinnar til þess að yfirbuga manninn. Þegar hún hafði enginn áhrif hörfaði hann og dró upp skammbyssu sína. Sem betur fór kom annar lögregluþjónn á vettvang rétt í því. Sá fyrsti slíðraði þá skammbyssuna og þeir reyndu í sameiningu að yfirbuga manninn. En þótt þeir beittu bæði kylfum og piparúða var það eins og að skvetta vatni á gæs. Jafnvel þegar lögregluhundur blandaði sér í slaginn dugði það ekki til. Það vildi hinum óða manni til happs að þá kom þriðji lögreglumaðurinn á vettvang. Sá var vopnaður rafbyssu og sekúndu síðar var búið að yfirbuga manninn. Rob Piercy lögregluliðþjálfi sagði að rafbyssan hefði bjargað lífi mannsins. Hann hafi verið mjög sterkur og snöggur og erfitt að handtaka hann. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem rannsókn leiddi í ljós að hann kann að hafa verið undir áhrifum áfengis eða lyfja. Honum var síðar sleppt gegn loforði um að mæta fyrir rétt.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira