Redknapp hefur áhyggjur af framtíð King Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. október 2010 20:18 Ledley King gengur af velli í gær. Nordic Photos / Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, viðurkennir að hann hafi áhyggjur af framtíð Ledley King í knattspyrnunni en hann fór meiddur af velli í leiknum gegn Fulham í gær. King hefur átt við krónísk hnémseiðsli að stríða og ekki getað æft eðlilega í mörg ár. Hann spilar ekki oftar en einu sinni í viku og æfir lítið sem ekkert inn á milli. „Hann verður frá í einhvern tíma," sagði Redknapp um King sem varð þrítugur fyrr í þessari viku. „Vandamálið er að hann æfir ekkert. Og þegar menn æfa ekki þá koma meiðslin. Þetta er mikil synd enda frábær leikmaður," sagði Redknapp. „Ef ég ætla að fara út á völlinn og taka sprett upp kantinn án þess að hafa æft nokkuð þá mun ég meiðast, hvort sem það verður á lærvöðva, kálfa eða í nára." „Og það er vanamálið - hann getur ekki æft. Þannig hefur það verið í nokkur ár og nú eru meiðslin að koma." King og William Gallas voru miðverðir hjá Tottenham í gær en þetta var ellefta miðvarðapar Tottenham í þrettán leikjum í haust. Redknapp hefur þurft að glíma við mikil meiðsli hjá sínum varnarmönnum og ekki skánar það. Þegar King meiddist kom Sebasien Bassong í liðið í stað King. Bassong og Gallas náðu að halda hreinu í síðari hálfleik en Tottenham vann leikinn, 2-1. Gallas kom til Tottenham frá Arsenal í sumar en leikurinn í gær var hans fyrsti í heilan mánuð. „Hann æfði á fimmtudaginn og það var í fyrsta sinn sem hann gat æft. Ég var ánægður með hann í þessum leik og hann verður einfaldlega að spila aftur á miðvikudaginn - það er enginn annar sem kemur til greina," bætti Redknapp við. Afar líklegt er að þeir verði í byrjunarliði Tottenham í leiknum mikilvæga gegn Inter á miðvikudagskvöldið.
Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira