Innlent

Sektir skili sér í tekjum til lögreglunnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Helgi Kjartansson segir að lögreglan á Selfossi þurfi meiri pening. Mynd/ Hari.
Ólafur Helgi Kjartansson segir að lögreglan á Selfossi þurfi meiri pening. Mynd/ Hari.
Þegar framlög til lögreglunnar eru ákveðin ætti að athuga hversu mikið fé kemur í ríkiskassann vegna aðgerða lögreglu, segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi. Hann sagði í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að hugsanlega ætti að taka meira tillit til þessa við ákvörðun fjárlaga á tímum niðurskurðar. Dæmi um slíkt fyrirkomulag væri ef að lögreglan fengi hlut af öllum þeim tekjum sem skila sér í ríkissjóð vegna sekta fyrir of hraðan akstur.

Ólafur Helgi segir hins vegar að slíkt fyrirkomulag ætti ekki að verða til langs tíma. Alltaf yrði ákveðin hætta á því að menn fylgdust mest með þeim brotum sem myndu gefa beinar tekjur. Lögreglunni sé hins vegar ætlað að sinna víðtæku eftirliti og löggæslu og best sé að sú löggæsla sé skipuð með tilliti til heildarinnar.

Ólafur Helgi vill ekki svara því hvort að embætti Sýslumannsins á Selfossi sé fjársvelt. „En við höfum úr minna fé að spila núna í ár og á næsta ári heldur en við sjálfir hefðum talið henta," segir Ólafur Helgi. Hann segir að svoleiðis hafi það verið undanfarin ár. Lögreglan verði hins vegar að sætta sig við og virða fjárlög.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×