Enski boltinn

Þjálfari Macclesfield lést eftir leik í gær

Elvar Geir Magnússon skrifar
Keith Alexander.
Keith Alexander.

Keith Alexander, knattspyrnustjóri hjá Macclesfield í ensku D-deildinni, lést í gær 53 ára að aldri.

Alexander tók sér nýlega frí frá störfum vegna veikinda en hann féll frá eftir að hann kom heim frá deildarleik gegn Notts County í gærkvöldi.

„Keith var frábær maður og hans verður sárt saknað á Moss Rose og meðal allra sem eru tengdir fótboltanum. Hugur okkar og samúð er hjá fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum," segir í tilkynningu frá Macclesfield.

Liðið situr í 21. sæti af 24 liðum í ensku D-deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×