Innlent

Friðjón Örn formaður bráðabirgðastjórnar Avant

Friðjón Örn Friðjónsson hæstaréttarlögmaður er formaður nýrrar bráðabirgðastjórnar Avant. Hulda Rós Rúriksdóttir hæstaréttarlögmaður og Ljósbrá H. Baldursdóttir, löggiltur endurskoðandi sitja einnig í stjórninni.

Í dag óskaði stjórn Askar eftir að fara í slitameðferð. Dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar varð fyrirtækinu að falli.

Fjármálaeftirlitið hefur orðið við beiðni Avant um að skipa félaginu bráðabirgðastjórn á grundvelli 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 4. gr. laga nr. 44/2009.

Samkvæmt nefndu ákvæði laganna getur stjórn fjármálafyrirtækis, sem á í þeim fjárhags- og rekstrarerfiðleikum að líkur séu til að það geti ekki staðið við skuldbindingar sínar eða uppfyllt kröfur um lágmark eigin fjár, leitað eftir því við Fjármálaeftirlitið að það taki við ráðum yfir fyrirtækinu. Við þær aðstæður getur Fjármálaeftirlitið skipað fjármálafyrirtækinu bráðabirgðastjórn, segir í tilkynningu.

Bráðabirgðastjórnin fer ein með sömu heimildir að lögum og eftir samþykktum Avant og stjórn og hluthafafundur hefði annars haft á hendi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×