Almenn ánægja með störf forseta Íslands 11. janúar 2010 07:00 Ólafur Ragnar Grímsson
Tæplega tveir af hverjum þremur sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins telja að Ólafur Ragnar Grímsson hafi staðið sig vel í embætti forseta Íslands. Alls sögðust 64,5 prósent að forsetinn hefði staðið sig vel í starfi, en 35,5 prósent sögðu hann hafa staðið sig illa. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir forsetann geta ágætlega við unað að tveir af hverjum þremur segist ánægðir með störf hans almennt. Niðurstaðan er í raun mjög góð fyrir Ólaf Ragnar sé tímasetningin höfð í huga, segir Gunnar Helgi. Forsetinn hafi tekið mjög umdeilda ákvörðun síðastliðinn þriðjudag, og ekki hefði verið við því að búast að 90 prósent væru ánægð með störf hans. Í könnun Fréttablaðsins hinn 27. febrúar í fyrra var einnig spurt um afstöðu fólks til forsetans. Spurningarnar eru ekki fullkomlega samanburðarhæfar, en þar sögðust rúmlega 44 prósent aðspurðra ánægð með störf forsetans, 20 prósent hvorki ánægð né óánægð, og um 36 prósent sögðust óánægð með störf Ólafs Ragnars. Talsverður munur er á afstöðu kynja til starfa forsetans. Tæplega 70 prósent kvenna sögðust ánægð með störf hans, en rúmlega 59 prósent karla. Þá er stuðningur við störf forsetans meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Alls sögðu tæplega 49 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins að forsetinn hefði staðið sig vel í starfi. Tæplega 73 prósent stuðningsmanna Framsóknarflokksins voru á sömu skoðun. Um 59 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar eru ánægð með störf Ólafs Ragnars, og tæplega 67 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna. Ekki var tölfræðilega marktækt að reikna afstöðu stuðningsmanna Borgarahreyfingarinnar eða Hreyfingarinnar. Hringt var í 1.100 manns fimmtudaginn 7. janúar. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var: Telur þú að Ólafur Ragnar Grímsson hafi staðið sig vel í embætti forseta Íslands? Alls tóku 81,7 prósent afstöðu til spurningarinnar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira