Mikið líf þrátt fyrir klórleka 11. janúar 2010 05:45 Klórlekinn er mönnum mikið áhyggjuefni en fiskur gengur þó af krafti í ána.mynd/veiðimálastofnun
Nýr fiskteljari í Varmá við Hveragerði hefur gefið áhugaverðar niðurstöður um lífríki árinnar. Teljarinn var settur niður vegna klórleka í ána fyrir tveimur árum og er samstarfsverkefni Veiðimálastofnunar, Veiðifélags Varmár og Þorleifslækjar og Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Samkvæmt bráðabirgðatölum gengu á tímabilinu júní–nóvember á síðasta ári tæplega 2.200 fiskar upp ána og um 250 niður. Þessir fiskar voru tuttugu til níutíu sentimetra langir. Stærsti hlutinn var undir fjörutíu sentimetrar en þó voru tæplega þúsund fiskar yfir þeirri stærð. Að öllum líkindum voru þetta mest urriðar. Mikið magn af óblönduðum klór rann frá sundlauginni í Hveragerði í Varmá fyrir tveimur árum. Klórslysið olli talsverðum fiskdauða í ánni og fundust dauðir fiskar á stórum kafla neðan klórlekans. Rannsóknir Veiðimálastofnunar á seiðabúskap árinnar skömmu eftir slysið bentu til þess að nánast öll seiði hefðu drepist á um tveggja kílómetra kafla neðan sundlaugarinnar. Óttast var að klórslysið gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir fiskstofna Varmár og í versta falli tæki það stofnana mörg ár að ná fyrri styrk. Seiðarannsóknir á árinu 2008 staðfestu enn frekar þann skaða sem varð á seiðabúskap árinnar en þá mátti þó sjá töluverð batamerki. - shá
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira