Margt annað þarf að klára fyrst 5. febrúar 2010 04:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Telur þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið ótímabæra og vill meðal annars að sett séu skýr lög um slíkar kosningar fyrst. Fréttablaðið/anton
Áður en gengið yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið þarf að huga að þrennu, að mati varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur: Í fyrsta lagi að ljúka þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Í annan stað þarf stjórnin að móta sér skýra afstöðu til sjávarútvegskerfisins sem slíks, það er um hvaða kerfi eigi að kjósa. Í þriðja lagi þarf að setja skýr lög um þjóðaratkvæðagreiðslur. Þorgerður Katrín bregst hér við þeim orðum Steingríms J. Sigfússonar, sem sagði í útvarpsþættinum Sprengisandi að þjóðaratkvæðagreiðsla um kvótakerfið kæmi til greina. „Erum við að tala um kvótakerfið eins og það er í dag eða eins og ríkisstjórnin ætlar sér að hafa það með því að byrja fyrningarleiðina í gegnum skötuselinn?“ spyr Þorgerður. Þetta sé óljóst með öllu. Stjórnin þurfi að móta sér stefnu í sjávarútvegsmálum. „Áður en við förum í einhverjum popúlisma að tala um þjóðaratkvæðagreiðslur um hitt og þetta eigum við að móta okkur almenn lög um þjóðaratkvæðagreiðslur, þannig að það verði skýrt að valdið sé hjá þjóðinni, að það sé hægt eftir ákveðnum leikreglum að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslu og þá eru engin mál undanskilin, hvorki kvótinn né annað,“ segir hún. Valdið eigi ekki að vera hjá einum manni, forseta Íslands. - kóþ
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira