Innlent

50 ára og eldri borga ekki inn á LungA

Framkvæmdaráð LungA 2010.
Framkvæmdaráð LungA 2010.
Tíu ára afmælistónleikar LungA-listahátíðarinnar verða haldnir utandyra á Seyðisfirði á laugardagskvöldið. Aðgangseyrir fyrir yngri en fimmtíu ára er 2.000 krónur. Aðrir gestir borga ekkert.

„Fimmtíu ára og eldri fá frítt inn. Hvers vegna? spyrja eflaust margir. Ástæðan er einföld, við viljum dreifa aldrinum meira heldur en hefur tíðkast. Því fleiri fullorðnir sem mæta á svæðið því skemmtilegra," segir í tilkynningu frá unga fólkinu í LungA-ráðinu 2010.

Meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á afmælistónleikunum eru Hjaltalín, Retro Stefson, Seabear, og Bloodgroup.

Margs konar viðburðir hafa verið á LungA-hátíðinni. Má þar nefna listasmiðjur og hönnunarverkstæði sem staðið hafa frá því á mánudag. Flestir viðburðirnir fara fram í og við félagsheimilið Herðubreið.

LungA 2010 lýkur á sunnudaginn með „grilli og kveðjuknúsi fyrir listamenn, starfsfólk, leiðbeinendur og þátttakendur í listasmiðjum," eins og segir í dagskránni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×