Nýra frá syni bjargar höfundi 4. janúar 2010 03:00 Rithöfundurinn góðkunni var heiðraður af samtökum fatlaðra í Bretlandi í haust. Hún hefur verið lögblind í fimm ár og er bundin við hjólastól. Mynd/Ability Media
Lífi breska rithöfundarins Sue Townsend var bjargað fyrr á þessu ári þegar í hana var grætt nýra úr elsta syni hennar. Townsend greindi frá aðgerðinni nú skömmu fyrir áramótin til að styðja starfsemi bresku nýrnasamtakanna og vekja athygli á sárum skorti á líffærum til ígræðslu. Townsend bendir á að í Bretlandi einu bíði nú um tíu þúsund manns eftir nýrnaígræðslu, en þar af deyi þrír á degi hverjum. Af þeim 1.500 sem fengu grætt í sig nýra þar í landi í fyrra fékk þriðjungurinn líffærið frá ættingja. Sue Townsend varð heimsfræg snemma á níunda áratug síðustu aldar fyrir Dagbókina hans Dadda, (The Secret Diary of Adrian Mole), en af henni spannst átta bóka röð um Dadda þar sem honum var fylgt fram á fullorðinsár. Frú Townsend er nú 63 ára og gantast með að hún hafi þrjú nýru. „Þótt sonur minn tali nú enn um nýrað sitt," segir hún í viðtali við dagblaðið Leicester Mercury í Bretlandi. Aðgerðin gekk ekki áfallalaust hjá Townsend, því nýrað starfaði ekki í fyrstu, var tekið úr og sett í aftur. Hún var því átta tíma á skurðarborðinu. Sykursýki varð til þess að hennar eigin nýru hættu að virka. „Fjölskylda mín kom saman, án samráðs við mig, og ákvað hver ætti að gefa nýra," sagði Townsend við dagblaðið Independent. - óká
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira