Uppáskriftir lækna misnotaðar í vaxandi mæli Karen Kjartansdóttir skrifar 4. janúar 2010 19:16
Örvandi lyf sem læknar skrifa upp á eru í vaxandi mæli misnotuð af fíkniefnaneytendum. Yfirlæknir á Vogi og framkvæmdastjóri Geðhjálpar segja að að læknar verði að bregðast við en dauðsföll megi rekja til aðgerðaleysis. Sprautufílkar ásælast í æ meira mæli örvandi læknalyf á borð við Rítalín og amfetamín að sprauta sig með. Talið er að um sjöhundurð sprautufíklar séu hér á landi. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að brýnt sé að bregðast við stöðunni. Hert aðhald geti skilað árangri það hafi til dæmis sýnt sig þegar stemmt var stigu við misnotkun á verkjalyfinu Contalgini fyrir um þremur árum. „Núna í kreppunni er meiri ásókn meðal sprautufíkla í til dæmis Rítalín, það er með algengari vímuefnum sem sprautað er í æð í dag. Þar þarf að taka til hendinni að mínu mati," segir Þórarinn. Hann segir uppáskriftir lækna mjög vel skráða hér á landi hins vegar þurfi að setja mannaafla hjá Landlæknisembættinu í að fylgjast með þessum skráningum og grípa inn í þegar þarf á að halda. „Það virðist vera það mikil ásókn í örvandi lyfin núna að það er full ástæða til að athuga þessi mál gaumgæfilega," segir Þórarinn. Mikið af þeim sem misnota lyf eiga við geðræn vandamál að stríða. Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar hefur haft reynslu af þeim hópi. „Hingað sækja skjólstæðingar og aðstandendur þeirra sem lýsa því hreint og beint yfir að þeir eigi greiðan aðgang að efnum sem við köllum í daglegu tali læknadóp," segir Sveinn. Hann segir stefnu Persónuverndar hafa reynst fjötur um fót við að koma í veg fyrir að hægt sé að girða fyrir misnotkun á Læknalyfjum. Áhrif þessarar miklu misnotkunar séu skelfileg. „Það eru dæmi sem við þekkjum frá fyrstu hendi að einstaklingar sem hafa haft greiðan aðgang að þessu þeir hafa látið lífið því miður," segir Sveinn.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Sjá meira