Yfirlýsing frá Rooney: Efast um framtíðarstefnu United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. október 2010 16:50 Wayne Rooney. Nordic Photos / Getty Images
Wayne Rooney hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann staðfestir að hann vilji fara frá Manchester United. Um fátt annað hefur verið fjallað í Englandi og þótt víðar væri leitað síðan að það fréttist að Rooney vildi fara. Fyrst staðfesti Alex Ferguson, stjóri United, það á blaðamannafundi í gær og svo Rooney með yfirlýsingu sinni í dag. „Ég hitti David Gill [framkvæmdarstjóra United] í síðustu viku og hann gat ekki gefið mér þau svör sem ég vildi fá um framtíðarskipan liðsins," sagði Rooney í yfirlýsingu sinni. „Það var þá sem ég sagði honum að ég myndi ekki skrifa undir nýjan samning." Hann sagði enn fremur að það hafi komið honum á óvart hversu ítarlega Ferguson fór í hans mál á blaðamannafundinum í gær. „Ég hafði áhuga á því sem Sir Alex hafði að segja í gær og sumt af því kom mér á óvart." „Það var satt, eins og hann sagði, að ég hafði fundað mörgum sinnum með fulltrúum félagsins ásamt umboðsmanni mínum um nýjan samning." „Á þeim fundum sem áttu sér stað í ágúst bað ég um að ég yrði fullvissaður um að félagið hefði áfram bolmagn til að laða til sín bestu leikmenn heimsins." „Ég hef aldrei komið fram við MUFC öðruvísi en af fullri virðingu. Hvernig væri annað hægt ef mið er tekið af frábærri sögu félagsins og þá sérstaklega á þeim sex tímabilum sem ég hef verið svo lánsamur að taka þátt í." „Hvað mig varðar snýst þetta allt um að vinna til verðlauna - eins og félagið hefur alltaf gert undir stjórn Sir Alex. Það var þess vegna sem mér fannst spurningar mínar réttlátar." „Þrátt fyrir þá erfiðleika sem liðið hefur gengið í gegnum að undanförnu, þá veit ég að ég stend ævinlega í stórri þakkarskuld við Sir Alex Ferguson. Hann er frábær knattspyrnustjóri og lærifaðir sem hefur stutt mig frá fyrsta degi er ég kom til félagsins frá Everton, átján ára gamall." „Ég óska þess fyrir hönd Manchester United að hann verði áfram í starfi að eilífu því hann er einstakur og snillingur."
Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Uppeldiskerfi argentínska fótboltans níðist á börnum Fótbolti Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Sjá meira