Umferðarstofa leggur línurnar fyrir eina mestu ferðahelgi sumarsins 1. júlí 2010 11:02 Búast má við mikill umferð næstu helgi.
Fyrsta helgi í júlí hefur um langt árabil verið ein mesta ferðahelgi sumarsins. Líklegt er að svo verði einnig í ár. Víða eru haldnar bæjarhátíðir sem draga að sér fjölda fólks auk þess sem fólk er að fara í sumarfrí sem hefur ferðalög í för með sér. Umferðarstofa leggur ríka áherslu á að ökuhraði sé löglegur og í samræmi við aðstæður hverju sinni. Ökumenn eru hvattir til að gefa bili milli bíla gaum því hætta á aftanákeyrslum eykst þegar umferð er mikil og raðir kunna að myndast. Allir sem ferðast í bíl eiga undantekningalaust að njóta öryggisbúnaðar, fullorðnir bílbelta, en börn þess búnaðar sem hæfir stærð þeirra og þroska. Framúrakstur hefur oft fylgt miklum umferðarhelgum, einkum þegar umferðin gengur hægt fyrir sig. Ökumenn eru minntir á að þar sem er heil óbrotin lína er lífshættulegt að aka framúr. Þeir sem af einhverjum ástæðum kjósa að aka hægar en meginumferðarstraumurinn eru hvattir til að skapa skilyrði til framúraksturs. Í lok helgar skapast oft miklar raðir, einkum á Suðurlandsvegi. Þeir sem eiga þess kost á að vera á ferð utan mesta umferðartímans eru hvattir til að nýta sér það til að komast hjá miklum röðum. Einnig gætu orðið tafir á Vesturlandsvegi vegna framkvæmda á honum frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi. Um þessa helgi og þá næstu mun Umferðarstofa í samstarfi við lögreglu, Vegagerð, Rannsóknarnefnd Umferðarslysa ásamt aðila frá skoðunarstöð hafa eftirlit með ökutækjum og eftirvögnum á þjóðvegum landsins. Einblínt verður á umferð frá höfuðborginni. Eru ökumenn því beðnir um að huga vel að eftirvögnum sínum og skoða ljós, tengibúnað, og annan öryggisbúnað svo sem aukaspegla áður en lagt er af stað. Einnig þurfa menn að athuga hvort þeir hafi réttindi til að aka með eftirvagn. Lögregla verður með mikið eftirlit á vegum landsins um helgina og eru ökumenn hvattir til að fylgja lögum og sýna aðgát. Ölvunarakstur hefur löngum verið mikið vandamál um sumarmánuðina og hefur haft mörg sorgleg slys í för með sér. Sérstaklega er ástæða til að hvetja menn til að gæta að sér að fara ekki of snemma af stað morguninn eftir áfengisneyslu.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Sjá meira