Enski boltinn

United borgar milljónir svo Ferguson þurfi ekki tala við BBC

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ferguson talar ekki við BBC.
Ferguson talar ekki við BBC.

Forráðamenn Man. Utd eru meira en tilbúnir að greiða 60 þúsund pund, eða rúmar 11 milljónir íslenskra króna, í sekt svo stjóri félagsins, Sir Alex Ferguson, geti haldið áfram að sniðganga BBC sem hann hefur neitað að tala við síðan árið 2004.

Ferguson er enn fúll vegna umfjöllunar stöðvarinnar um umboðsmenn í knattspyrnu þar sem sonur hans, Jason, var sérstaklega tekinn fyrir.

Samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar verða knattspyrnustjórarnir að tala við fjölmiðla. Ef ekki eru þeir sektaðir.

Man. Utd ætlar að standa við bakið á stjóranum sínum og greiða hámarkssektina fyrir tímabilið sem er 60 þúsund pund. Þá þarf Ferguson ekki að hafa meiri áhyggjur af BBC.

"Ég held að hann muni aldrei tala við okkur aftur. Alex er maður sem stendur við það sem hann segir," sagði Alan Shearer en hann starfar nú fyrir BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×