Innlent

Kom úr tjörn við nálægt hús

Gátan leyst. Styrjan, sem Eva Dögg fann í móanum við heimili sitt, kom úr tjörn við hús í grenndinni.  Fréttablaðið/Valli
Gátan leyst. Styrjan, sem Eva Dögg fann í móanum við heimili sitt, kom úr tjörn við hús í grenndinni. Fréttablaðið/Valli

Eigandi styrju, sem fannst spriklandi í móa við Stekkjarhvamm í Hafnarfirði á dögunum og Fréttablaðið sagði frá, hefur gefið sig fram.

Fiskurinn kom úr tjörn við hús í Háahvammi, sem á lóð út að móanum þar sem Eva Dögg Steinarsdóttir Röver, 10 ára, var að leik og fann fiskinn. Hún telur að fugl hafi misst fiskinn úr goggi sínum ofan í móann.

„Ég er með stóra tjörn í garðinum og el þar fiska, gullfiska, koja og styrjur,“ segir Birgir Bjarnason, húseigandi við Háahvamm 3. Hann tók ekki strax eftir því að fiskurinn var horfinn og fréttirnar um fund Evu Daggar fóru fram hjá honum. „Ég tók eftir því einn daginn að tvær styrjur voru horfnar og fann ég aðra þeirra, hvíta styrju, og var hún þá dauð en hina fann ég ekki, þá svörtu, sem er trúlega sú á myndinni.“

Birgir segir að sér sé hulin ráðgáta hvernig styrjurnar komust úr tjörninni, sem er tæpur metri á dýpt. „Þar að auki er strengt girni fyrir tjörnina til að varna því að fuglar, það er mávur, fari í tjörnina,“ segir Birgir. „Ég hef litla trú á því að köttur hafi veitt hana upp úr tjörninni án þess að éta hana nema þá mjög matvandur köttur.“ - pg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×