Gísli Marteinn situr áfram 28. júní 2010 17:02
Gísli Marteinn Baldursson ætlar ekki að víkja sem borgarfulltrúi vegna ályktunar sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti um helgina. Hann segist engar lánafyrirgreiðslur hafa fengið, hvorki kúlulán né önnur óvenjuleg lán. Í ályktuninni er skorað á þá sem hafa þegið háa styrki frá félögum eða notið fyrirgreiðslu sem ekki hafi staðið almenningi til boða, að víkja úr sínum embættum. Séra Halldór Gunnarsson bar tillöguna upp og beindi sérstaklega spjótunum að Gísla og Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni og fyrrverandi ráðherra. Í pistli um málið á heimasíðu sinni segir Gísli að prófkjörið í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna árið 2006 hafi verið stærsta prófkjöri sem haldið hafi verið hér á landi. Hann segir að á þeim tíma hafi forsvarsmenn í Sjálfstæðisflokknum verið ákaflega ánægðir með þá athygli sem flokkurinn fékk „...og hrósuðu mér bæði opinberlega og í einkasamtölum fyrir framgönguna." Það hafi auk þess þótt upptaktur fyrir kosningarnar að Sjálfstæðisflokkurinn fengi svo mikla athygli og auglýsingu. „Svei mér þá ef sjálfstæðismenn hældust ekki svolítið um af 'glæsilegu prófkjöri' og báru hróðugir saman við prófkjör hinna flokkanna." Gísli segir að nú bregði svo að landsfundur flokksins telji að þetta prófkjöri hafi ekki verið gott. Engar áhyggjur séu viðraðar í ályktuninni um að prófkjörin hafi skaðað kjörna fulltrúa í störfum sínum. „Á meðan á prófkjörinu stóð árið 2005 tók ég skýrt fram, að sjálfur hefði ég enga burði til að fjármagna svo stórt framboð, heldur treysti ég algerlega á framlög fólks og fyrirtækja sem vildu styðja mig." Þá segir Gísli að ályktun landsfundarins sé ekki alslæm. Hann ætli hér eftir sem hingað til að taka mark á þeim viðbrögðum sem hann hefur fengið. „Sjálfur ætla ég að nýta öll viðbrögð við störfum mínum, jákvæð sem neikvæð, til að styrkja mig í mínu hjartans máli, sem er að gera Reykjavík að betri borg. Til þess hef ég nú verið kosinn í tvígang, og í tveimur prófkjörum hafa þúsundir Reykvíkinga raðað mér ofarlega á lista til að vinna að málum sem þeir treysta mér fyrir. Því trausti ætla ég ekki að bregðast," segir Gísli í pistlinum sem hægt er að lesa hér.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“