Keypti þrjú lögfræðiálit vegna Magma 16. júlí 2010 06:00 Magma hefur keypt HS Orku, sem m.a. er eigandi orkuversins á Svartsengi. Nefnd um erlenda fjárfestingu telur viðskiptin standast kröfur laga.
Kostnaður við þóknun nefndarmanna í nefnd um erlenda fjárfestingu og sérfræðiálit þriggja lögfræðinga sem nefndin leitaði til vegna umfjöllunar um mál Magma Energy nemur samtals tæpum 1.200 þúsund krónum, samkvæmt upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti. Mánuði eftir að nefndin var kjörin af Alþingi í ágúst í fyrra fékk hún mál Magma til meðferðar. Haldnir hafa verið sex fundir. Hver nefndarmaður hefur fengið 13.500 krónur greiddar fyrir hvern fund en formaðurinn tvöfalda þá fjárhæð. Þóknun nefndarmanna er því samtals 486.000 krónur. Við umfjöllun um mál Magma leitaði nefndin álits lögfræðinganna Dóru Guðmundsdóttur, hjá lagastofnun Háskóla Íslands, Kristínar Haraldsdóttur, forstöðumanns Auðlindaréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík, og Dóru Sifjar Tynes héraðsdómslögmanns. Lögfræðingarnir fengu samtals greiddar 703.980 krónur, samkvæmt upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti. Samtals er þóknun nefndarmanna og lögfræðinga 1.189.980 krónur. Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur það hlutverk í umboði Alþingis að fylgjast með að ákvæðum laga um takmarkanir á fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri sé framfylgt. Nefndin er ráðherra til ráðuneytis og er ráðherra skylt að afla umsagnar nefndarinnar áður en leyfi eru veitt til einstakra umsækjenda. Enginn þeirra aðila sem Alþingi kaus í nefndina hefur þó lögfræðimenntun eða aðra sérfræðiþekkingu á starfssviði nefndarinnar. Nefndarmennirnir eru Unnur Kristjánsdóttir handmenntakennari, sem er formaður fyrir hönd Samfylkingar, Adolf H. Berndsen umboðsmaður, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Silja Bára Ómarsdótttir, háskólakennari í stjórnmálafræði, fyrir VG, Björk Sigurgeirsdóttir viðskiptafræðingur, fyrir Borgarahreyfinguna, og Sigurður Hannesson stærðfræðingur, fyrir Framsóknarflokkinn.
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira