Innlent

Angraður með hávaða í átta ár

Sporthúsið lofar að draga úr hávaða sem mælst hefur yfir leyfilegum mörkum.
Sporthúsið lofar að draga úr hávaða sem mælst hefur yfir leyfilegum mörkum.

Íbúi einn í Kópavogi segist ætla að leggja fram kæru vegna mikils ónæðis frá Sporthúsinu. „Í tæplega sjö ár hef ég kvartað undan þessu við bæjar­yfirvöld, forráðamenn Sporthússins og lögreglu án árangurs og ekkert breytist. Ég get ekki hugsað mér að eyða enn einu sumrinu í garðinum undir látlausum drunum frá Sporthúsinu,“ segir í bréfi íbúans sem sent var undir yfirskriftinni „Endalaus hávaði“ og barst bæjaryfirvöldum í maí í fyrra.

Málið var rætt á síðasta fundi skipulagsnefndar í kjölfar þess að heilbrigðiseftirlitið hafði mælt hávaðann og sagt hann yfir mörkum.

Á fundinum kom fram að Sport­húsið lofar úrbótum. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×