Bandaríkjaferð Portsmouth varð að martröð Elvar Geir Magnússon skrifar 25. júlí 2010 16:30 Steve Cotterill, stjóri Portsmouth.
Hrakfarir Portsmouth ætla engan enda að taka en æfingaferð liðsins í Bandaríkjunum hefur snúist út í martröð. Frestun á flugi, þrumuveður og týndar töskur hafa heldur betur sett strik í reikninginn. Portsmouth var sett í greiðslustöðvun í fyrra og féll úr ensku úrvalsdeildinni. Liðið skellti sér til Bandaríkjanna til að undirbúa sig undir baráttuna í Coca-Cola deildinni og steinlá 4-0 fyrir DC United í æfingaleik í Washington. „Engin æfing, enginn svefn, engar treyjur - Það er ekki furða að Portsmouth steinlá fyrir DC United," segir í umfjöllun á heimasíðu Portsmouth þar sem sagt er að liðið hafi ekki getað mætt í verra standi í leikinn. Leikmenn enska liðsins þurftu að leggja á sig 27 klukkustunda ferðalag þar sem tengiflugi var frestað vegna þrumuveðurs. Margar klukkustundir fóru í bið í rútu fyrir utan flugvöllinn í Chicago en þetta er í annað sinn í þessari tveggja vikna æfingaferð sem þeir verða strandaglópar. Um helmingur leikmannana sem knattspyrnustjórinn Steve Cotterill hafði úr að velja hafði ekki leikið aðalliðsleik þegar kom að þessari ferð. Þá þurftu tveir leikmenn að yfirgefa hópinn og halda heim á leið vegna meiðsla, annar þeirra er markvörðurinn Jon Stewart sem líklega er fótbrotinn. Hópurinn náði fjögurra tíma svefni fyrir leikinn gegn DC United og náði ekkert að æfa í þrjá daga. Til að kóróna vitleysuna týndust 14 töskur í ferðalaginu, þar á meðal búningasett liðsins. Liðið þurfti því að fá varabúninga DC United lánaða fyrir leikinn! Enn meiru salti var stráð í sárin en leikurinn fór fram í 38 gráðu hita, lenti á heitasta degi ársins í Washington. Markvörðurinn Jamie Ashdown meiddist svo í leiknum og Hayden Mullins fékk að líta rauða spjaldið eftir rifrildi við mótherja. Leikmenn Portsmouth verða líklega guðs lifandi fegnir þegar þeir komast heim til Englands.
Enski boltinn Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Formúla 1 Mun Conte taka við Manchester United? Sport Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira