Myndband af Eþíópíu vélinni springa á flugi Óli Tynes skrifar 27. janúar 2010 07:54
Níutíu manns fórust með Boeing 737 þotu Ethiopian Airlines. Mikið þrumuveður og rigning var í Beirut þegar vélin hóf sig til flugs og hafa verið vangaveltur um að það hafi verið orsök slyssins. Á myndbandi úr öryggismyndavél má hinsvegar sjá úr fjarska þegar vélin hefur sig til flugs. Hún er aðeins smá-díll á myrkum himninum en sjá má frá henni tvo ljósglampa með stuttu millibili. Andartaki síðar fer vélin útfyrir ramma myndavélarinnar og rétt í því sést stór og mikill blossi á himni. Sagt er að þetta sé frá því að vélin sprakk í loft upp. Þetta stemmir við lýsingar sjónarvotta sem segjast hafa séð vélina steypast logandi í hafið skammt frá ströndinni. Þetta stemmir einnig við fullyrðingar líbanska hersins sem segir að eldur hafi kviknað í vélinni rétt eftir flugtak. Það hefur nú verið upplýst að rétt eftir flugtak fór vélin af þeirri stefnu sem flugumferðarstjórnin hafði gefið henni. Flugumferðarstjóri bað um að hún sneri aftur á þá stefnu en rétt á eftir varð mjög snögg og undarleg stefnubreyting og svo hvarf vélin af ratsjá og allt samband rofnaði. Þetta virðist allt hafa gerst svo snöggt að flugmennirnir hafi ekki haft tíma til þess að láta vita að eitthvað væri að. Þetta gæti stemmt við að litlu ljósglamparnir tveir hafi verið litlar sprengingar sem leiddu til þess að vélin fór af réttri leið. Svo hafi orðið mikil sprenging og hún hrapað í hafið.
Mest lesið Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Innlent „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Innlent Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Innlent Fleiri fréttir Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Sigar hernum á „hryðjuverkamenn“ í Portland Ráku starfsmenn FBI sem fóru á hnéð eftir morðið á Floyd Fundu leynilega sígarettuverksmiðju í neðanjarðarbyrgi Drónar sáust á flugi yfir herflugvelli í Danmörku og Noregi Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Ætlar að peppa herforingjana á fundinum fordæmalausa Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Tekinn af lífi fyrir að myrða stúlkubarn við „særingu“ Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru Ekki hægt að staðfesta drónaflug við Álaborgarflugvöll Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Segist ekki munu leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Keppast við að ákæra Comey Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Sjá meira