Didier Drogba með þrennu í 6-0 sigri Chelsea á West Brom Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2010 18:29 Didier Drogba og Florent Malouda skoruu saman fimm mörk í kvöld. Mynd/AP
Chelsea sá til þess að nýliðar Blackpool voru aðeins á toppnum í tvo tíma því meistarnir eru komnir á toppinn eftir 6-0 sigur á West Bromwich Albion í kvöldleiknum í ensku úrvalsdeildinni. Didier Drogba skoraði þrennu í leiknum og Florent Malouda skoraði tvö mörk í auðveldum og þægilegum heimasigri Chelsea-liðsins á slöku liði West Bromwich. Það tók Englandsmeistara Chelsea aðeins tæpar sex mínútur að opna markareikninginn á nýju tímabili. Florent Malouda skoraði þá þegar hann fylgdi á eftir skoti John Obi Mikel í kjölfarið af aukaspyrnu Didier Drogba. Didier Drogba kom Chelsea síðan í 2-0 með marki beint úr aukspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks. Skotið fór í gegnum varnarvegginn og var af ódýrari gerðinni. Didier Drogba kom Chelsea í 3-0 á 55. mínútu þegar hann fylgdi á eftir skalla John Terry og sjö mínútum síðar var Frank Lampard búinn að koma Chelsea í 4-0 eftir sendingu Ashley Cole og undirbúning Nicolas Anelka. Didier Drogba innsiglaði síðan þrennuna sína þegar hann skoraði fimmta markið á 68. mínútu. Drogba byrjaði því nýtt tímabil á sama hátt og hann endaði síðasta tímabil þar sem hann skoraði þrennu í lokaumferðinni. Florent Malouda skoraði síðan sjötta og síðasta markið í leiknum á 90. mínútu eftir stungusendingu frá Nicolas Anelka.
Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira