Enski boltinn

Redknapp óttast um feril Woodgate

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Harry Redknapp óttast að Jonathan Woodgate gæti neyðst til að hætta í knattspyrnu. Framundan gæti verið aðgerð fyrir varnarmanninn sem er meiddur í nára.

Woodgate hefur lengi verið meiddur og hann lék aðeins þrjá leiki á síðasta tímabili. Hann hefur ekkert leikið síðan í nóvember á síðasta ári.

"Það er talað um að hann þurfi að fara í aðgerð. Það er síðasti möguleikinn hans. Líklega. Það er þó síðasta úrræðið, að fara í aðgerðina," sagði Redknapp.

Stjórinn fékk William Gallas til sín í gær vegna meiðsla Woodgate.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×