Enski boltinn

Huddlestone hittir sérfræðing

Elvar Geir Magnússon skrifar

Tom Huddlestone, miðjumaður Tottenham, þarf að fara í skoðun hjá sérfræðingi vegna meiðsla í liðböndum í ökkla sem hann hlaut í sigurleiknum gegn Everton á sunnudag.

Huddlestone varð fyrir tæklingu John Heitinga snemma í seinni hálfleik. Nú bíða menn á White Hart Lane eftir sérfræðiáliti til að sjá hvort hann þurfi að gangast undir aðgerð vegna meiðslana.

Huddlestone hefur verið hjá Tottenham síðan 2005 þegar hann kom til félagsins frá Derby.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×