Innlent

Potaði í auga lögreglumanns

Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir að pota í auga lögreglumanns á Blönduósi. Ríkissaksóknari ákærir manninn fyrir brot gegn valdstjórninni.

Atvikið átti sér stað við Héraðsbókasafnið á Blönduósi. Manninum er gefið að sök að hafa potað með fingri í auga lögreglumanns sem þar var við skyldustörf.

Þá reyndi maðurinn ítrekað að pota í bæði augu lögreglumannsins, sem fékk blæðingu í hægra augað og marðist í kringum bæði augun.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×