Þriggja ára áætlun í Reykjavík - engar skattahækkanir fyrirhugaðar 2. mars 2010 14:23 Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, mælir í dag fyrir frumvarpi að þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar fyrir árin 2011-2013. Í tilkynningu frá borginni segir að áætlunin byggi á grunni fjárhagsáætlunar ársins 2010 og fylgi þeirri stefnumörkun sem þar var sett um að áfram verði staðinn vörður um grunnþjónustu við borgarbúa og forgangsraðað í þágu þjónustu við börn og ungmenni og velferðarþjónustu. „Engar skattahækkanir eru fyrirhugaðar í Reykjavík samkvæmt þriggja ára áætluninni, hvorki er gert ráð fyrir hækkun útsvars né fasteignaskatta en haldið verður uppi atvinnustigi eins og kostur er í höfuðborginni," segir í tilkynningunni. „Hanna Birna segir frumvarpið bera vott um ábyrga fjármálastjórn og einkennast af þeim nýju vinnubrögðum sem Reykjavíkurborg hefur innleitt við fjármálastjórnina. Lögð hefur verið áhersla á að forgangsraða í þágu þess sem mestu skiptir, barna og velferðar, og leita lausna með hagræðingu og sparnað að leiðarljósi í stað skatta- og gjaldahækkana," segir ennfremur. Hallalaus A-hluti Þá segir að gret sé ráð fyrir hallalausum rekstri borgarsjóðs (A-hluta) allt tímabilið. „Handbært fé frá rekstri stendur vel undir afborgunum á tímabilinu. Handbært fé í lok tímabilsins verður 14 milljarðar og mun aukast um 1,4 milljarða á tímabilinu. Lögð er áhersla á að Reykjavíkurborg viðhaldi sterkri eiginfjárstöðu og hafi mikið handbært fé til að standa vörð um lánshæfi borgarsjóðs og tryggja greiðsluhæfi hans vegna skuldbindinga samstæðunnar." Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta er áætluð neikvæð um tæpan 1,5 milljarð króna árið 2011, 1,2 milljarða árið 2012 og rúman 1 milljarð árið 2013. „Hér má benda á að Orkuveita Reykjavíkur verður samkvæmt áætlun með jákvæða niðurstöðu allt tímabilið en hún er burðarásinn í B-hluta samstæðunnar. Áætlað er að eignir minnki um 1,4 milljarða á tímabilinu sem skýrist einkum af mismun á nýfjárfestingum og afskriftum. Áætlað er að skuldir lækki um 200 milljónir og eigið fé lækki um 1,2 milljarða. Áætlað er að handbært fé í lok tímabils verði 16,1 milljarðar." Frumvarpið er hægt að nálgast á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is. Síðari umræða og afgreiðsla þriggja ára áætlunar fer síðan fram í borgarstjórn 16. mars.
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Fleiri fréttir Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Sjá meira