Fréttir vikunnar: Varaþingmaður fjarlægður og móðgaðir listamenn Valur Grettisson skrifar 10. október 2010 20:14 Óli Björn Kárason var fjarlægður af lögreglunni.
Vikan hófst með látum þegar mótmæli voru boðuð á mánudagskvöldið. Tilefnið var stefnuræða forsætisráðherrans. Átta þúsund manns svöruðu kalli nokkurra kvenna sem höfðu boðað mótmælin á Facebook. Lögreglan var með gríðarlegan viðbúnað, meðal annars girti hún Alþingishúsið af. Mótmælin fóru að mestu vel fram en þinghúsið fékk að finna fyrir því enda var matvælum og öðru kastað í húsið. Þá voru fjölmargar rúður brotnar. Meðal mótmælenda reyndust einnig vera þjóðernissinnar en Nasistafáninn sást blakta á mótmælunum. Svo virðist sem einhver mótmælandi hafi ofboðið að sjá fánann því hann hrifsaði fánann af eigandanum og kastaði á brennandi bál. En það voru ekki eingöngu fjölskyldufólk, stjórnleysingjar og nýnasistar sem mótmæltu fyrir utan Alþingi, upptaka náðist af því þegar varaþingmaðurinn Óli Björn Kárason var dreginn yfir girðingu lögreglunnar og hann fjarlægður. Síðar sagði hann lögregluna hafa komið sér til bjargar. Ásbjörn Óttarsson átti menningarlega viku. Fáið ykkur vinnu Það var síðan í miðri viku sem Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hélt umdeilda ræðu á þingi. Þar spurði hann í umræðum um fjárlögin, afhverju listamenn gætu ekki einfaldlega fengið sér vinnu eins og venjulegt fólk. Listamenn brugðust ókvæða við gagnrýninni og meðal annars var hótað allsherjarlistaverkfalli í sólarhring. Þá kallaði Kolbrún Halldórsdóttir, formaður Félags íslenskra listamanna, Ásbjörn á teppið. Hún útskýrði fyrir honum að list og iðnaður henni tengdri, velti 80 milljörðum á ári hverju. Að lokum baðst Ásbjörn afsökunar á ummælunum og kom í veg fyrir allsherjarverkfallið. En hann sagði reyndar í afsökunarbeiðninni að listamenn yrðu að sýna fram á að þeir skili einhverjum tekjum umfram þá styrki sem þeir hafi þegið eins og kvikmyndagerðamenn hafi til að mynda gert. Trylltur Hrafn Lögreglan fékk síðan frekar undarlegt útkall í vikunni. Þá var tilkynnt um snarbrjálaðan Hrafn sem hafði ráðist á barn. Húsmóðir sagði að hrafninn hefði sest á pall við heimili fjölskyldunnar. Dóttir hennar hefði verið úti með hundinn, sem er þriggja mánaða hvolpur. Hrafninn hafi staðið á pallveggnum og mænt á þau. Þegar stelpan hafi beygt sig niður til að ná í spýtu fyrir hundinn, sem var hálfpartinn undir henni, hafi hrafninn ráðist á hana og reynt að grípa í bakið á henni. „Barnið varð skelfingu lostið, öskraði og hljóp inn með hundinn á eftir sér. Ef ég hefði ekki náð að loka hurðinni þá hefði hrafninn komið inn á eftir þeim. Þetta kvikindi hékk svo gargandi á pallinum heillengi og þvílík vonska í honum," sagði konan í samtali við Skessuhorn sem greindi fyrst frá málinu. Hrafnin var svo drepinn að lokum. Sruli Recht má selja hnúajárnaregnhlífar. Hættulegar regnhlífar Ástralski Iðnhönnuðurinn Sruli Recht var svo sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur en hann hafði verið ákærður fyrir heldur sérkennilegt vopnalagabrot. Hann var ákærður fyrir að flytja inn fjögur hnúajárn og nota þau sem haldföng á regnhlífum sem hann selur í verslun sinni, Vopnabúrinu. Dómarinn sýknaði hann á þeim forsendum að hnúajárnin væru ekki vopn þegar þau væru fest við regnhlíf sem Sruli kallar Umbuster. Sruli sagðist ánægður með sigurinn enda sýknaður með öllu og hann fær að auki regnhlífarnar til baka sem voru gerðar upptækar. Aðspurður hvað honum fannst um málið svaraði hann: „Mér er létt og það er gott að dómarinn var sammála mér um að þetta væru ekki vopn." Umfangsmikil afmælisveisla Vikunni lauk svo með pompi og prakt þegar haldið var upp á afmæli John Lennons. Hann hefði orðið sjötugur um helgina hefði hann lifað. Í tilefni dagsins voru friðarverðlaun veitt sem rithöfundurinn, ljóðskáldið og baráttukonan Alice Walker hlaut. Hún er þekkt fyrir baráttu sína gegn kynþáttahatri, mannréttindabrotum og mismunun kynjanna. Hún skrifaði meðal annars bókin Color of Purple sem varð síðar að bíómynd. Þess má reyndar geta að Oprah Winfrey lék aðalhlutverkið í myndinni. Friðarsúlan var svo tendruð á laugardagskvöldinu og tónleikar haldnir í Háskólabíói. Þar voru meðal annars Ringo Starr og Sean Lennon, sonur Johns. Öll tóku þau lagið ásamt Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Sjá meira