Innlent

Braut golfkylfu á pólskum karlmanni

Fjórir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir hættulega líkamsárás með golfkylfu. Sá sem hafði sig mest frammi hlaut sex mánaða fangelsisdóm en hann er skilorðsbundinn til fjögurra mánaða. Hinir, sem eru með hreint sakavottorð, hlutu 60 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.

Mennirnir réðust að þremur pólskum karlmönnum í júní 2008 á Laugavegi við Bergstaðastræti í Reykjavík. Þeir veittust að þeim með ítrekuðum hnefahöggum og spörkum í líkama og höfuð.

Sá sem hafði sig í mest frammi var dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa slegið manninn með golfkylfu í bak, síðu og handlegg, en við höggin brotnaði golfkylfan í tvennt, og því næst kastaði hinn dæmdi neðri helmingi golfkylfunnar í höfuð mannsins. Sá sem réðist að manninum vopnaður golfkylfu hefur áður verið dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×