Wayne Rooney alskeggjaður og spikfeitur í nýrri Nike-auglýsingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2010 11:00 Wayne Rooney í auglýsingunni. Mynd/Nike Football
Hún er ekki sérlega glæsileg framtíðin hans Wayne Rooney eins og hún kemur fram í nýrri auglýsingu frá Nike. "Write The Future" auglýsingarherferðin snýst um að sýna það á spaugilegan hátt hvernig lítil mistök geta breytt öllu fyrir íþróttamenn. Í tilfelli Rooney þá er hann orðinn alskeggjaður og spikfeitur íbúi í hjólhýsi eftir að hafa fengið taugaáfall vegna mistaka á HM í Suður Afríku í sumar. Rooney átti þá að hafa klikkað á sendingu á Theo Walcott í leik á móti Frökkum á HM í sumar. Frank Ribery nýtti sér það og skoraði markið sem sló Englendinga út. Wayne Rooney sést fyrst falla niður á hnén í örvæntingu sinni og síðan er sýnt hvernig tilvera hans hrynur í kjölfarið. Hann missir algjörlega fótanna, hættir í fótbolta og endar alskeggjaður og með bumbu í vesældarlegu hjólhýsi endalaust að svekkja sig á mistökunum á móti Frökkum. Wayne Rooney sýnir mikla leikarahæfileika í auglýsingunni en í henni koma einnig fram stjörnur eins og Didier Drogba, Fabio Cannavaro, Cristiano Ronaldo, Ronaldinho, Theo Walcott, Cesc Fabregas og Iniesta. Hluta af auglýsingunni má finna hér en hún verður frumsýnd í Englandi um næstu helgi.
Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira