José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann þvertekur fyrir að hafa gagnrýnt Fabio Capello, landsliðsþjálfara Englands.
Haft var eftir Mourinho á dögunum að slæmt gengi enska landsliðsins væri Capello að kenna og að hann væri ekki rétti maðurinn í starfið.
"Viðtalið sem var birt í The Daily Mirror er uppspuni. José Mourinho talaði aldrei við fjölmiðilinn. Þess vegna neitar hann því að hafa sagt þessi orð," segir meðal annars í yfirlýsingunni.
Fulltrúi þjálfarans segir hann vera að íhuga málshöfðun gegn blaðinu.