Á sterum með haglabyssuna á lofti 16. febrúar 2010 18:30 Birkir færður fyrir dóm.
Birkir Arnar Jónsson sem dæmdur var í sex ára fangelsi í dag ætlaði að hræða mann sem kærasta hans hafði kært fyrir kynferðisbrot. Birkir var á sterum og undir áhrifum áfengis þegar hann skaut sex haglabyssuskotum í átt að fyrrum vinnuveitanda kærustunnar. Það var um klukkan 4 að nóttu til þann 15.nóvember síðastliðinn að pilturinn mætti grímuklæddur að íbúðarhúsi í Þverárseli í Reykjavík vopnaður haglabyssu. Á sófa innandyra lá eigandi bakarís sem kærasta Birkis hafði starfað í. Fyrir dómi sagðist eigandinn hafa farið til dyra eftir að bankað hafði verið uppá. Á sekúndubroti hefði hann verið sleginn í höfuðið með haglabyssuhlaupi. Hann hafi skellt aftur hurðinn og þá hefði hafist skothríð og anddyrið fyllst af ryki og glerbrotum. Birkir hleypti af fimm skotum, tvo fóru í hurðina en þrjú þeirra í gegnum rúðu og inn í íbúðina. Hann var síðan handtekinn kvöldið eftir á heimili sínu, eftir að nafnlaus ábending um að hann hefði verið að verki barst lögreglu. Í búð hans fundust meðal annars þrjár haglabyssur. Ástæður árásarinnar má rekja til þess að kærasta Birkis hafði skömmu áður kært bakara í bakarínu fyrir kynferðisbrot en það mál hafi verið látið niður falla. Annar starfsmaður í bakarínu hafði einnig kvöld eitt sent kærustunni eftirfarandi skilaboð: „Dömpaðu kærastanum og komdu og vertu hjá mér í nótt" Birkir sá umrædd skilaboð og reiddist mjög. Birkir úrtskýrði að tilgangurinn með för sinni í Þverárselið umrædda nótt hefði verið að mæta þessum mönnum "face to face" eins og hann orðaði það og hræða þá. Birkir hafði neytt áfengis umrædda nótt en auk þess hafði hann neytt 100 millilítra af lyfinu testosteron tvisvar sinnum í viku og hefði gert um þriggja mánað skeið fyrir árásina. Í niðurstöðu geðlæknis fyrir dómi segir að Birkir sé sakhæfur en verkið hafi verið unnið af hvatvísi þar sem hann hafi tekið mjög inn á sig lýsingar kærustu sinna á kynferðibrotunum. Erfitt væri að segja til um áhrif steraneyslu í þessu sambandi. Þó væri þekkt að steranotkun geti valdið því að menn verði hvatvísari og reiðari. Birkir játaði aldrei að hafa bankað upp á í Þverárselinu og lamið eigandann í ennið með byssuhlaupinu. Að mati dómsins eru lysignar hans á atvikum afar ótrúverðugar. Þar segir ennfremur að telja verið að það hefði ekki aftarð honum að skjóta þótt honum hefði verið ljóst að skotárásin kynni að leiða til líftjóns. Auk þess að vera dæmdur í sex ára fangelsi þarf Birkir að greiða fórnarlambinu 900.000 krónur í skaðabætur.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Sjá meira