Á þriðja tug biðu bana 16. febrúar 2010 00:00 Harkalegur árekstur Við áreksturinn lyftust fremstu vagnar beggja lestanna upp og brak þeyttist um víðan völl. fréttablaðið/AP
Tvær farþegalestir rákust harkalega á skammt frá Brussel, höfuðborg Belgíu, þegar annarri þeirra var ekið áfram á móti stöðvunarmerki. Að minnsta kosti 18 manns fórust og 55 særðust, margir mjög illa. Óttast er að allt að 25 manns hafi látið lífið. Áreksturinn olli því að framhliðin á einum lestarvagninum rifnaði af og aðrir vagnar fóru út af sporinu. Önnur lestin var á leiðinni til Liège en hin til Braine-le-Comte, og rákust þær beint framan á hvor aðra. Við áreksturinn lyftust vagnar beggja lesta upp og eyðilögðu meðal annars rafmagnslínur í loftinu. Svo virðist sem hár steinveggur hafi komið í veg fyrir að brak úr lestunum þeyttist yfir á íbúðarhús í næsta nágrenni. „Þetta var martröð,“ sagði Christian Wampach, 47 ára farþegi sem þurfti að láta hjúkrunarfólk binda um sár á höfði sér á íþróttavelli, þangað sem minna slasaðir farþegar voru fluttir strax eftir slysið. „Við hentumst til í meira en fimmtán sekúndur. Margir slösuðust í mínum vagni en ég held að þeir sem létust hafi verið í fremsta vagninum,“ sagði Wampach, sem var í þriðja fremsta vagninum í annarri lestinni. Óhappið varð um klukkan hálfníu að staðartíma, eða hálfátta að íslenskum tíma, á lestarstöðinni í Buizingen, úthverfi borgarinnar Halle sem er skammt suðvestur af höfuðborginni Brussel. Háhraðalestir fyrirtækisins Thalys, sem ganga oft á dag milli Hollands, Belgíu, Frakklands og Þýskalands, nota sömu leið og lestirnar tvær sem rákust á í gær. Ferðir háhraðalestanna féllu því niður fram eftir öllum degi. Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, var nýlentur á flugvelli í Pristína í Kósóvó þegar fréttir bárust af lestarslysinu, en hætti við heimsókn sína þangað og var flugvél hans strax snúið við og flogið aftur til Belgíu. Slysið er það mannskæðasta í Belgíu síðan 1954, en þá fórust tuttugu þýskir fótboltaaðdáendur í lestarslysi skammt frá Leuven og fjörutíu meiddust að auki. Árið 2001 varð einnig alvarlegt lestarslys í Belgíu sem kostaði átta manns lífið. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira