Innlent

Wikileaks: Taldi Davíð ógna pólitískri framtíð sinni

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/Valgarður Gíslason
Bjarni Benediktsson taldi Davíð Oddsson ógna frama hans innan Sjálfstæðisflokksins og vera stóra hindrun í vegi þess að Íslendingar sæktu um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er mat embættismanna í bandaríska sendiráðinu.

Þetta kemur fram í skýrslu bandaríska sendiráðsins í Reykjavík til utanríkisráðuneytisins í Washington. Skjalið er á meðal þeirra sem lekið var til Wikileaks, en fréttastofa hefur hluta þeirra undir höndum. Í skýrslu sem dagsett er þann 11. október 2008 og merkt leyniskjal er fjallað um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir bankahrunið. Þar segir að brestir séu komnir í stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar. Þá segir að svo virðist sem Geir H. Haarde og Davíð Oddsson fái mestu útreiðina í innlendum og erlendum fjölmiðlum og hjá álitsgjöfum.

Í skýrslu bandaríska sendiráðsins segir ennfremur að Davíð hafi komið fram með margar illa ígrundaðar yfirlýsingar í fjölmiðlum skömmu eftir hrun og að margir telji að sært stolt Davíðs hafi átt þátt í því að Íslendingar leituðu ekki fyrr á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þá segir að Geir Haarde hafi átt í miklum vandræðum með að skipta um yfirstjórn í Seðlabankanum. Í raun hafi Geir misst af stóru tækifæri til að auka vinsældir sínar með því að skipta ekki um seðlabankastjóra.

Þá segir að staða Davíðs innan Sjálfstæðisflokksins hafi versnað mikið eftir hrun, sérstaklega í ljósi þess að ungir sjálfstæðisþingmenn væru margir hverjir jákvæðir í garð þess að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu, en Davíð sé eindreginn andstæðingur þess. Þá segjast embættismenn í sendiráðinu bandaríska hafa sterkar heimildir fyrir því að Bjarni Benediktsson, þá þingmaður og núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, líti á Davíð Oddsson sem ógn við stöðu sína í flokknum og möguleika Íslands á að ganga í Evrópusambandið.


Tengdar fréttir

Wikileaks: Telja Kína stunda iðnnjósnir hér

Kínverjar eru taldir stunda iðnnjósnir, sem beinast að rannsóknum fyrirtækja á sviði erfðagreiningar og læknisfræði hér á landi. Þetta kemur fram í skýrslum bandaríska sendiráðsins í Reykjavík til utanríkisráðuneytisins í Washington.

Wikileaks: Vildu senda Guantanamo fanga til Íslands

Snemma árs 2007, meðan George W. Bush var enn forseti Bandaríkjanna, fóru bandarísk stjórnvöld þess á leit við Íslendinga að taka við föngum frá Guantanamo á Kúbu. Þetta kemur fram í leyniskjölum bandarísku utanríkisþjónustunnar, sem Fréttablaðið hefur undir höndum.

Wikileaks: Viðurkenndi sig ekki sem vanda

Carol Van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, taldi Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóra, ekki skilja hversu mikill vandi hann sjálfur hafi verið í endurreisnarstarfinu eftir bankahrunið.

Wikileaks: Bandaríkin furðuðu sig á samskiptaleysi Íslendinga

Tal um fjárhagsaðstoð Rússa við Ísland í bankahruninu í októberbyrjun 2008 var tilefni vangaveltna í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi um hvort Bandaríkjastjórn þyrfti að hafa hér frekari hönd í bagga. Carol van Voorst, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, taldi ekki fullreynt af hálfu íslenskra stjórnvalda hvort hjálp væri í boði frá Bandaríkjunum.

Wikileaks: Jóhanna hótaði að segja af sér

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði nokkrum þingmönnum Vinstri grænna í júlí í fyrra að hún væri að missa þolinmæðina og að hún myndi segja af sér innan fárra daga ef þeir styddu ekki samkomulag sem náðst hafði í Icesave-málinu.

Wikileaks: Björn vildi einkavæða hluta af Gæslunni

Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, vildi einkavæða hluta af Landhelgisgæslunni í byrjun árs 2006. Frá þessu greindi Stefán Eiríksson, þáverandi deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Það hefði gefist vel að einkavæða hluta af löggæslunni, eins og Neyðarlínuna 112.

Wikileaks: Steingrímur kom bandaríska sendiráðinu á óvart

„Sumum til undrunar er Sigfússon að sanna sig sem alvarlegur og ábyrgur fjármálaráðherra," segir í skýrslu Neils Klopfenstein sendiráðunauts í bandaríska sendiráðinu 4. júní 2009. Daginn áður átti Steingrímur J. Sigfússon fund með Klopfenstein og ræddi stöðu ýmissa lykilmála á Íslandi.

Wikileaks: Georg olli Birni vonbrigðum

Stefán Eiríksson fullyrðir snemma árs að Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hafi valdið Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra vonbrigðum, þótt Björn hafi persónulega valið Georg í embættið árið 2005.

Wikileaks: Sáttatónn Geirs pirraði Björn

Þann 26. maí 2006, hálfum öðrum mánuði eftir að Bandaríkjamenn tilkynntu um brottför hersins, skrifar Carol Van Voorst sendiherra stjórnvöldum í Washington greinargerð um þá kenningu Vals Ingimundarsonar sagnfræðings, að væri Davíð Oddsson enn forsætisráðherra myndu Bandaríkjamenn ekki hafa kallað herinn heim.

Wikileaks: Skilafrestur útilokar afgreiðslu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagðist í september árið 2009 telja að Evrópusambandið hafi vísvitandi gefið Íslendingum frest til þess að skila inn svörum við spurningalista þess þann 16. nóvember svo öruggt verði að leiðtogaráð sambandsins geti ekki afgreitt aðildarumsókn Íslands á fundi sínum í desember.

Wikileaks: Taldi Íslendinga fáfróða

Í bandaríska sendiráðinu var grannt fylgst með viðbrögðum Íslendinga við brotthvarfi Bandaríkjahers frá Keflavíkurflugvelli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×