Hinn íslenski Harry Potter 13. janúar 2009 07:00 Albert Hauksson fer með hlutverk Harry Potter í uppfærslu Menntaskólans við Sund, en hann útsetur einnig alla tónlistina í sýningunni. Vísir/Stefán
Leikfélag Menntaskólans við Sund frumsýnir á næstunni rokksöngleik um galdrastrákinn Harry Potter. Albert Hauksson fer með aðalhlutverkið en hann þykir ekkert sérstaklega líkur Harry Potter úr kvikmyndunum. „Ég skrifaði leikgerð upp úr fjórðu, fimmtu og sjöttu bókinni. Fjórða og fimmta bókin hafa verið kvikmyndaðar svo fólk þekkir þær, en sú sjötta kemur ekki fyrr en næsta sumar svo við erum svolítið að fara að frumsýna það efni," segir Kolbrún Björt Sigfúsdóttir um hinn íslenska Harry Potter rokksöngleik sem leikfélag Menntaskólans við Sund er að setja upp um þessar mundir. Kolbrún skrifaði leikgerðina upp úr sögunum um galdrastrákinn, íslenskaði texta við nokkur vel valin erlend lög og leikstýrir söngleiknum ásamt eiginmanni sínum Erlingi Grétari Einarssyni. Albert Hauksson fer með hlutverk Harry Potter í uppfærslunni og aðspurð segir Kolbrún hann hafa selt þeim Erlingi hugmyndina í prufunum. „Albert er með gleraugu en ekki dökkhærður. Það hjálpar okkur svolítið að gera þetta ólíkt kvikmyndunum því við viljum ekki apa eftir þeim. Við leggjum til dæmis meiri áherslu á hluta Voldemorts og ástarsöguna í þessu með sambandi Hermione og Rons," segir Kolbrún. Söngleikurinn verður frumsýndur 17. febrúar í Loftkastalanum, sem mun á sama tíma opna eftir eigendaskipti undir rekstrarstjórn Bjarna Hauks Þórssonar. „Við ætlum að vera svolítið grand á því á frumsýningunni. Það var mikill heiður að fá inni í Loftkastalanum því fleiri sóttust eftir að sýna á þessum tíma, svo við erum mjög ánægð," segir Kolbrún. alma@frettabladid.is
Mest lesið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Fleiri fréttir Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Sjá meira