Felipe Massa veðjar á orkudrykk Eiðs Smára 23. mars 2009 07:00 Íþróttahetjurnar Felipe Massa og Cristiano Ronaldo verða andlit Soccerade-drykksins. Fyrirtækið er að mestum hluta í eigu Íslendinga en meðal hluthafa er Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona.
Drykkjavöruframleiðandinn Soccerade, sem er í meirihlutaeigu Íslendinga, hefur gert samning við ökuþórinn Felipe Massa um að vera andlit drykkjarins. Hann verður í góðum félagsskap. Ívar Jósafatsson, framkvæmdastjóri Soccerade International, segir í samtali við Paddoctalk.com að þeir séu mjög ánægðir að hafa fengið Massa til liðs við fyrirtækið. Hann sé án nokkurs vafa einn fremsti íþróttamaður heims. „Jákvætt viðmót hans, hraði og ending er eitthvað sem fellur vel að vörumerki okkar,“ segir Ívar í samtali við síðuna. Massa er kominn í hóp með ekki ómerkari manni en Cristiano Ronaldo, einum fremsta knattspyrnukappa heims og leikmanni Manchester United og portúgalska landsliðsins. Ronaldo hefur verið andlit íþróttadrykkjarins í tæpt ár en samningar þess efnis voru handsalaðir í Manchester í júlí. Massa, sem er brasilískur, er einn helsti ökuþór Ferrari. Hann var aðeins hársbreidd frá því að verða heimsmeistari ökuþóra í fyrra en varð að sjá á eftir titlinum í hendurnar á Lewis Hamilton í æsispennandi keppni á heimavelli sínum í Brasilíu. Soccerade hyggst hasla sér völl víða um heim og er orkudrykkurin nú fáanlegur á Íslandi. Þá er gert ráð fyrir því að markaðssetja hann í Sviss, Austurríki og Bretlandi. Soccerade er að stærstum hluta í eigu Íslendinga en meðal hluthafa eru knattspyrnufeðgarnir Eiður Smári og Arnór Guðjohnsen. freyrgigja@frettabladid.is CARDIFF, WALES - FEBRARY 26: Cristiano Ronaldo of Manchester United celebrates scoring the third goal during the Carling Cup Final match between Manchester United and Wigan Athletic at The Millennium Stadium on February 26 2006 in Cardiff, Wales. (Photo by Matthew Peters/Manchester United via Getty Images) Christiano Ronaldo, Manchester United, Portúgal.
Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira