240 manns sótt foreldranámskeið eftir bankahrun Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 25. júní 2009 20:49 Ólafur Gunnarsson, fjölskylduráðgjafi, segir foreldra á námskeiðinu ánægða. „
Eftir meira en tíu ára starf mitt á þessu sviði, þá er þetta okkar mesti árangur fram að þessu," segir Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskylduráðgjafi. 120 pör hafa sótt tíu foreldranámskeið sem ráðgjafarfyrirtæki Ólafs, ÓB-ráðgjöf, setti á fót í kjölfar bankahrunsins í samstarfi við þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar og heilsugæslustöðvar. Samkvæmt aðstandendum námskeiðsins hjálpar það til við að undirbúa verðandi foreldra og foreldra barna allt að þriggja ára fyrir eitt mikilvægasta verkefni lífsins; að ala upp barn. Námskeiðinu, sem kallað er Barnið komið heim, er ætlað að hjálpa þátttakendum að viðhalda og efla samband sitt samhliða foreldrahlutverkinu. Ólafur segir álag á nýbökuðum foreldrum mikið, og það hafi enn aukist í kjölfar bankahrunsins þegar óvissa á heimilum er mikil. Að hans sögn sýna rannsóknir að foreldrar foreldrar upplifi minni ánægju í sambandinu fyrstu þrjú árin eftir fæðingu barns en áður var. Hins vegar bendi rannsókn sem birt var 2007 til þess að pör sem sæki námskeiðið upplifi mun minni ánægjurýrnun en svo. Hann segir foreldra verða næmari fyrir þörfum barnanna og börnin sýni minni streitu og brosi meira. Hann segir stöðumat sem gert er eftir hvern tíma sýna að þátttakendur á námskeiðunum, sem haldin voru í vetur, eru mjög ánægðir og telja gagnsemi þeirra mjög mikla. Námskeiðið, sem ber nafnið Barnið komið heim, byggir á rannsóknum hjónanna og sálfræðinganna John og Julie Gottman, en þau standa framarlega í rannsóknum á hjónabandinu á heimsvísu. Námskeiðið er sex vikur að lengd og er kennt einu sinni í viku, tvo tíma í senn. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um næsta námskeið hjá ogg@obradgjof.is og í síma 553-9400, en það hefst 6. júlí.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira