Ólafur Ragnar heiðursdoktor við Ohio háskóla 14. desember 2009 10:12 Gordon Gee rektor Ríkisháskólans í Ohio sæmir forseta nafnbót heiðursdoktors. MYND/Kevin Fitzsimons.
Ríkisháskólinn í Ohio, fjölmennasti háskóli Bandaríkjanna, gerði í gær, sunnudaginn 13. desember, forseta Íslands Ólaf Ragnar Grímsson að heiðursdoktor við hátíðlega athöfn í Columbus. „Forseta er veittur þessi heiður fyrir framlag hans til alþjóðasamfélagsins og baráttunnar gegn loftslagsbreytingum, fyrir að efla samstarf vísindamanna og fræðastofnana á vettvangi umhverfismála og nýtingar náttúruauðlinda og stuðla þannig að lausnum á brýnum vandamálum veraldar," segir í tilkynningu frá forsetaembættinu. Þar segir að athöfnin hafi farið fram á hátíðarsamkomu háskólans og sóttu hana um fimmtán þúsund manns: prófessorar, kennarar og starfslið háskólans, útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra. „Kvöldið áður sat forseti hátíðarkvöldverð í boði rektors háskólans, Gordon Gee. Meðan á dvölinni í Ohio stóð flutti forseti Íslands tvo fyrirlestra. Sá fyrri fjallaði um loftslagsbreytingar, bráðnun jökla og árangur af landgræðslu og gróðurvernd á Íslandi, svo og hvað aðrar þjóðir geti lært af því starfi. Fyrirlesturinn var haldinn í boði Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins við Ríkisháskólann í Ohio, Ohio Agricultural Research and Development Center, og sóttu hann um 500 vísindamenn, rannsakendur og stúdentar. Fyrirlesturinn bar heitið Soil as the New Soldier in Fighting Climate Change: Iceland's Lessons for World Sustainability og má nálgast hann á heimasíðu embættis forseta." „Síðari fyrirlesturinn var haldinn í boði Alþjóðaráðs Columbusborgar, Columbus Council of World Affairs, og fjallaði hann um loftslagsbreytingar, nýtingu hreinnar orku, reynslu Íslendinga og möguleika Bandaríkjanna til að virkja jarðhita. Fyrirlesturinn bar heitið The Future of Climate Change: Economic Growth through Energy Transformation og sótti hann mikill fjöldi áhrifamanna úr fræðasamfélagi og viðskiptalífi Ohio. Fyrirlesturinn má nálgast á heimasíðu forsetaembættisins." Forsetinn átti einnig nokkra viðræðufundi með prófessorum og forystumönnum við Ohio ríkisháskólann. „Þar var einkum fjallað um samvinnu við Ísland á sviði landgræðslu, loftslags- og jöklarannsókna og nýtingar kolefnis á hagkvæman hátt með skynsamlegri landnotkun og nýjum búskaparháttum." Þá sat forseti kvöldverð með fræðimönnum sem tengjast Íslandi, bæði á sviði náttúrufræða, íslenskra bókmennta og þjóðfræða. Einnig hitti forseti að máli íslenska námsmenn sem stunda nám við Ohio ríkisháskólann.
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku Sjá meira