Prófessor telur lán til félaga starfsfólks fara gegn lögum 3. apríl 2009 06:15
Stjórnir bankanna brutu í bága við lög þegar þær seldu starfsmönnum sínum hluti í bönkunum í gegnum einkahlutafélög, að mati Stefáns Más Stefánssonar, lagaprófessors við Háskóla Íslands. Undantekning í hlutafélagalögum leyfir að starfsmönnum sé lánað til kaupa í fyrirtækjum sínum. „Einkahlutafélag er auðvitað ekki starfsmaður fyrirtækisins," segir Stefán. Hann setur þó þann fyrirvara að um lán hafi verið að ræða, í skilningi hlutafélagalaga. Í 104. grein laganna segir að starfsmennirnir eða tengd félög megi fá lán til að kaupa hlutina, en Stefán kveður að umrædd tengd félög séu tengd fjármálafyrirtækinu, ekki starfsmönnunum. Þekkt dæmi um að starfsmaður banka hafi stofnað félag til slíkra kaupa er af Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrum forstjóra Kaupþings. Hann stofnaði félag í eigin nafni og fékk lán upp á 3,5 milljarða til þessa. Alls fengu starfsmenn í Kaupþingi fimmtíu milljarða að láni til hlutabréfakaupa. Starfskjarastefna banka kveður á um með hvaða hætti umbun til æðstu starfsmanna skuli vera. Samkvæmt starfskjarastefnu Kaupþings var starfsmönnum leyft að kaupa þessa hluti „til þess að samræma hagsmuni starfsmanna við langtímahagsmuni hluthafa". Aðalfundur hvers banka samþykkir starfskjarastefnu hans. Spurður hvort stjórnir bankanna hafi farið á svig við samþykktir aðalfunda með þessum lánum, segir Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags fjárfesta, að samþykktir aðalfunda á Íslandi séu ekki merkilegar: „Aðalfundir samþykktu aldrei neitt, þetta var mjög hrátt." Spurður hvernig lán til hlutafélaga standist stefnu sem miði að því að samræma hagsmuni banka og starfsmanna, þegar starfsmenn séu ekki endilega í persónulegum ábyrgðum fyrir einkahlutafélaginu, segir Vilhjálmur: „Þarna er ekkert verið að tengja hagsmuni starfsmanna og bankans saman, þarna er verið að velta allri áhættunni yfir á bankana. [...] Félag getur ekki verið aðili að kjarasamningi." En þetta mun ekki hafa verið skilningur bankanna, því í skýringum við ársreikning Landsbanka 2007 er tekið fram að lánað hafi verið til félaga í eigu æðstu stjórnenda. Annars er hvergi minnst á lán til einkahlutafélaga í starfskjarastefnum bankanna, eftir því sem næst verður komist. Refsing fyrir brot á viðkomandi grein hlutafélagalaga getur varðað allt að tveggja ára fangelsi, að sögn Stefáns Más.- kóþ
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira