Innlent

Mál og menning á Laugavegi

Mál og menning Ný bókabúð á Laugavegi 18 með sama nafni og sú gamla opnar innan tíðar.fréttablaðið/rósa
Mál og menning Ný bókabúð á Laugavegi 18 með sama nafni og sú gamla opnar innan tíðar.fréttablaðið/rósa

Bókabúð Máls og menningar verður áfram rekin á Laugavegi 18, þrátt fyrir að reksturinn sem þar hefur verið sé að flytjast á Skólavörðustíg.

Samkomulag náðist í gær á milli Kaupangs, eiganda Laugavegs 18, og Pennans, sem rak þar verslun þar til nýlega, um kaup þess fyrrnefnda á vörumerkinu „Bókabúðir Máls og menningar". Kaupangur taldi við hæfi að eignast vörumerkið þar sem bókabúð Máls og menningar hefur verið í húsinu í 48 ár.

Verslunin sem opnar á næstunni á Skólavörðustíg mun því bera nafnið Eymundsson. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×