Þurfum sértækar aðgerðir í kreppunni 5. janúar 2009 03:00 Þórunn Sveinbjarnardóttir styður sértækar aðgerðir til að laða erlenda fjárfesta að landinu. Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að ívilna álfyrirtæki.
Umhverfisráðherra er ekki ósátt við ákvörðun iðnaðarráðherra um að láta staðfesta fjárfestingasamning vegna allt að 360.000 tonna álvers í Helguvík. Össur Skarphéðinsson greindi frá því í blaðinu á laugardag að hann hefði tekið þessa ákvörðun í lok síðasta árs og að hún væri forsenda þess að erlendir bankar veittu lán til framkvæmda þar. Þórunn var spurð hvort þetta þýddi ekki að Samfylkingin hefði getað komið í veg fyrir álversframkvæmdirnar. Svarar hún því til að löngu hafi verið búið að taka ákvörðun um álverið og öll leyfi hafi legið fyrir. En fjármögnun verkefnisins hafi verið komin í uppnám og samningurinn snúist um niðurfellingu gjalda og skattaívilnanir. „Það er vissulega umdeilanlegt hvort ríkisvaldið eigi að beita sér með þessum hætti. En við þurfum að horfast í augu við þá erfiðu staðreynd að Ísland hefur ekki það lánstraust sem það hafði áður og þá þurfum við að beita sértækum aðgerðum. Ég er þeirrar skoðunar að eins og staðan er núna í íslensku efnahagslífi beri ríkisvaldinu að hafa atvinnustefnu sem miðar að því að laða erlenda fjárfesta að landinu. Þetta gæti verið fordæmi fyrir fleiri slíka gjörninga, allra handa atvinnustarfsemi.“ Aðspurð segist Þórunn hvorki vera að tala um að fleiri álver verði samþykkt né að Helguvíkurálverið sé æskilegt sem slíkt. Samningurinn hafi verið kynntur fyrir sér og ríkisstjórn, en Þórunn svarar ekki hvort nokkur mótmæli hafi verið við honum. Engin ný ákvörðun hafi verið tekin nú.- kóþ
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Fleiri fréttir Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Sjá meira