Innlent

Útkoman ræðst á morgun

mikið verk Forseti loftslagsráðstefnunnar hefur átt ófáa fundina til að tryggja að umræður sigli ekki í strand.fréttablaðið/kóp
mikið verk Forseti loftslagsráðstefnunnar hefur átt ófáa fundina til að tryggja að umræður sigli ekki í strand.fréttablaðið/kóp

Connie Hedegård, forseti loftslagsráðstefnunnar, þykir hafa haldið vel á spilum þegar hún náði samkomulagi um vinnuáætlun næstu daga. Afríkuríkin höfðu uppi mikla gagnrýni og Connie var sökuð um að draga taum iðnríkjanna. Hún fullvissaði þó alla um að ekkert yrði ákveðið fyrr en á föstudag og eru flestir sammála um að hún hafi staðið sig vel.

Connie fór þó ekki í grafgötur með að hver dagur skipti máli. „Næstu 48 tímar ráða úrslitum,“ sagði hún á blaðamannafundi í hádeginu í gær. Víst er að það hefur aukið á áhyggjur þróunarríkjanna, en sum þeirra hafa svo fámennar sendinefndir að þau geta ekki tekið þátt í öllum þeim fundum sem haldnir eru hér í Bella Center. Þau leggja því ríka áherslu á að ekki verði samið um neitt fyrr en þjóðarleiðtogarnir mæta á svæðið. Þeir byrja að streyma að í dag og á föstudag má reikna með að hér verði 120 leiðtogar.

Connie var spurð hvers vegna tíminn hafi ekki verið nýttur betr síðustu tvö árin, en þar voru línur lagðar fyrir ráðstefnuna árið 2007. Hún líkti stjórnmálamönnum í alþjóðlegum samningum við skólabörn sem nýttu alltaf frestinn til að skila ritgerð til fulls og fengju hann svo framlengdan. Skiluðu ekki fyrr en á allra, allra síðustu stundu.

Þá mætti ekki gleyma því að Bandaríkin hefðu verið treg í taumi undir forystu fyrrum forseta. Með komu Baracks Obama í Hvíta húsið hefðu orðið breytingar þar á og því væri útlitið allt öðruvísi nú.

Hún sagði menn þó fráleitt hafa setið auðum höndum síðustu tvö ár. „Hefði einhver sagt mér í Balí að eftir tvö ár myndu allir þessir þjóðarleiðtogar telja það svo mikilvægt að mæta hingað, hefði ég ekki trúað því.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×